Færsluflokkur: Bloggar
15.5.2007 | 17:40
Skelfilegt mál.
Hvarf stúlkubarnsins, Madeleine er skelfilegt mál og er það einlæg von mín að hún finnist heil á húfi sem allra fyrst.
Mér finnst ekki gott að lesa svo alvarlega frétt sem þessa og rekast þar á jafn leiðinlega villu og er að finna í síðustu setningunni. Slíkt dregur úr alvarleika fréttarinnar sem og trúverðugleika þess miðils sem birtir fréttina.
Foreldrarnir töldu sig hafa útsýni yfir sumarleyfisíbúðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.5.2007 | 12:48
Á ekki að eiga sér stað
Svona á að sjálfsögðu ekki að eiga sér stað en virðist ekki hringja bjöllum hjá neinum hér...
,,Bassaleikarinn Vortex er spurður að því hvort sveitinni langi til að spila á einhverjum stað sem hún hafi ekki komið til"
Morgunblaðinu er skömm að svona löguðu!
Ennfremur mætti Morgunblaðið íhuga að setja upp íslenskar gæsalappir fyrir okkur svo við þurfum ekki að grípa til notkunar á kommum til að bjarga málunum.
Dimmu Borgir vilja halda tónleika í Dimmuborgum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.5.2007 | 08:35
Grín eða misskilningur?
Myndin við fréttina sýnir unga aðdáendur halda á eiginhandaráritunum (trúlega áritanir raunverulegra Nylonstúlkna) en textinn við myndina gefur til kynna að þessar ungu stúlkur ,,skipi söngflokkinn Nylon".
Ég held að þarna hljóti að hafa átt sér stað einhver misskilningur nema því aðeins að verið sé að gera grín að okkur....
Nylon á vinsælasta lag landsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.5.2007 | 08:22
Arnarnesið hvað...
Arnarnes og fjallið Ernirinn varða dalinn Arnardal sem hin mikla Arnardalsætt er út af, en af Arnarnesi þessu má sjá eitt fegursta sólarlag á Íslandi.
Gaman líka að geta þess að fyrstu jarðgöng á Íslandi, svokölluð Hamarsgöng í Arnarneshamri eru ekki á Súðavíkurhlíð eins og kennt er í skólabókum og víðar, heldur í landi Arnardals.
En hins vegar kemur setningin ,,Rétt norðan við Arnarnes en að sögn lögreglu var aldrei veruleg hætta á ferðum" í fréttinni mjög á óvart vegna þess hversu samhengislaus hún er....
Tveir stangveiðibátar vélarvana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2007 | 19:11
Hvað finnst ykkur?
Finnst ykkur í lagi að einkavæða Landsvirkjun?
Og ef þið eruð í alvöru sátt við það, af hverju?
Látið í ykkur heyra....
Segir að byrjað sé að undirbúa sölu Landsvirkjunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.4.2007 | 22:17
Nú þykir mér týra.
,,Þrátt fyrir að það hafi verið dálítið kalt í veðri"
Það er þrítugasti apríl.......... á Íslandi! Alla jafna hefði verið skítkalt á þessum degi árs en það var bara alls ekki kalt í veðri í dag heldur óvenju hlýtt.
Ég efa ekki að vatn Elliðaáa hafi verið kalt en að tala um að kalt hafi verið í veðri í dag, er algjör firra.
Keppt í flúðafimi í Elliðaánum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.4.2007 | 22:10
Ég er til
í að prófa.
Hvert snýr maður sér til þess?
Vonir bundnar við pillu sem örvar kynhvötina og dregur úr matarlyst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.4.2007 | 09:36
Ekki gleyma
Skátunum, þetta er jú einn aðaldagurinn þeirra.
Skrúðganga í bænum með tilheyrandi marseringum og fánaburði krúttlegra skátabarna sem fá að njóta sín eitt augnablik eftir æfingar veturins.
Sumri fagnað með ýmsum hætti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.4.2007 | 09:17
Veit á gott
segir þjóðsagan, við vonum það og gerum það besta úr því sem að höndum ber.
Gleðilegt sumar.
Sumar og vetur frusu saman | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.4.2007 | 21:49
Ógnvekjandi?
Ég er farin að halda að lesendur séu smeykir við mig...
Miðað við fjölda heimsókna án athugasemda við skrif mín og kvittunarleysi í gestabók þá hlýt ég að vera harla ógnvekjandi.
Ætli það sé stafsetningaráráttan hjá mér sem hefur svona slæm áhrif á fólk *verður hugsi*
Fyrstu kynni mín af mbl blogginu voru reyndar á þeim nótunum.....
Ef einhver vill og nennir að lesa um það, þá var þetta þannig að ég var að lesa frétt á mbl.is og þar var bloggfyrirsögn sem vakti athygli mína. Nú ég las bloggið og þar eð ég, Ísdrottningin hef árum saman látið til mín taka varðandi málfar og stafsetningu á öðrum vettvangi á netinu, þá gat ég ekki annað en svarað bloggaranum með aðfinnslum varðandi málfar hans.
Ég taldi mig vera að gera þetta með stæl og með húmor en viðurkenni núna að þetta var kannski frekar kaldhæðinn húmor hjá mér... Viðkomandi var með stafsetninguna í lagi en málfræði og setningarfræði ábótavant, það sem þó var sýnu verst var að orðatiltæki voru öll meira og minna vitlaust notuð og stundum jafnvel tveimur splæst saman, næstum því á Brávallagötumáta en þó ekki með sama skemmtanagildi. Tek eitt dæmi: Uppspuni með rótum í stað uppspuna frá rótum....
Nú var það á engan hátt ætlun mín að gera manninum nein leiðindi, ég persónulega hefði skammast mín ef frá mér hefðu farið slíkar ambögur og viljað leiðrétta slíkt sem allra fyrst. Já, ég er mannleg og geri stundum villur og ég vil vera leiðrétt þegar það gerist!! Mínar aðfinnslur sneru eingöngu að málfari, ekki að efni greinarinnar (þó að það hugnaðist mér engan veginn). Með öðrum orðum, ég taldi mig vera að gera góðverk dagsins og þó svo að ég skrifaði athugasemdina í nafni Ísdrottningarinnar en ekki raunheimanafni. Ég taldi að hann myndi hafa samband við mig á netfangi mínu vildi hann vita deili á mér, ég þurfti jú að gefa upp netfang til að geta sent inn athugasemd.
Smástund seinna var búið að þurrka út athugasemd mína en ekki búið að leiðrétta textann. Undrun mín var mikil en þar eð ég sá að netfangið mitt kom ekki fram með athugasemdinni gerði ég aðra tilraun og lét netfangið mitt fylgja með í athugasemdinni með það í huga að þannig gæti hann spurt mig að raunheimanafni ef það væri honum mikilvægt án þess þó að það birtist á bloggsíðunni.
Sú athugasemd var einnig þurrkuð út án nokkurra leiðréttinga.
Þá fór ég að fylgjast með síðunni hans og skrifa fleiri athugasemdir, allar um málfar. Ég skal alveg viðurkenna það að þegar þessi bloggari þurrkaði út allar athugasemdir frá mér og tvær aðrar frá fólki sem var málefnalegt en ósammála hans skoðunum þá varð ég pirruð.
Ég sagði honum því vafningalaust að:
Undir fornar ýfast nú,
áður djúpt sem stóðu.
Þessu vinur veldur þú
og verði þér að góðu.
og athugasemdirnar frá mér urðu hvassari og mig minnir að ég hafi jafnvel ýjað að gáfnafarslegum skorti. Hann var greinilega ekki meiri maður en svo að geta ekki tekið málfræðilegum leiðréttingum og lokaði því á að hægt væri að skrifa athugasemdir á síðuna, fyrst frá öllum utan mbl bloggsins og svo á alla nema "bloggvini" sína og er það trúlega enn svo.
Já, svoleiðis var nú það. Já, já ég skal viðurkenna það hér og nú: Það var barnalegt af mér að láta hann reita mig til reiði. Ég hef það eitt mér til málsbóta að þola illa dónaskap (og jú ég hafði lúmskt gaman af þessu þegar ég hætti að vera hissa, en höfum það bara okkar á milli, ekki segja neinum frá því....)
Já, niðurstaðan er sem sagt sú að Ísdrottningin er greinilega ógnvekjandi svo við vitnum í gamla ræmu: Be afraid..... be very afraid....... (eða þannig sko! *skellir uppúr*)
Má bjóða ykkur að giska á úr hvaða bíómynd þessi setning er? Það er að segja ef ég er ekki búin að fæla alla í burtu eftir þennan lestur...
Ykkar einlæg, Ísdrottningin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Ísdrottningin hefur talað.
Spurt er
Bloggvinir
- asthildurcesil
- bardurorn
- blues
- disill
- dvergur
- ea
- eurovision
- eyvi
- fanneyunnur
- gattin
- geirg
- gretar-petur
- hallurg
- heidathord
- hexia
- hrannarb
- ingolfurasgeirjohannesson
- kaffi
- kolgrimur
- krilli
- landi
- limped
- nonniblogg
- olafurfa
- ormurormur
- pannan
- ragnarborg
- rattati
- saxi
- sibbulina
- sigurjon
- texi
- tharfagreinir
- valgeir
- vefritid
- vertu
- villithor
- zerogirl
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar